Matvælatækni

 

 

   Home | Velkomin | SGS skoðun | Hreinlætisklúbburinn | Hugbúnaður | Rannsóknarþjónustan | Mælitæki | Vinnuverndarráðgjöf | REACH ráðgjöf Vinnuverndarráðgjöf
 

Við veitum ráðgjöf og aðstoð við gerð skriflegrar áætlunar um öryggi og heilbrigði í fyrirtækjum matvælaiðju og innleiðingu þessa í þínu fyrirtæki.

Allir vinnustaðir landsins þurfa nú,  til samræmis við þær kröfur sem fram koma í lögum 46/1980 og reglugerð 920/2006 og varða aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, að gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á sínum vinnustað.

Í þessu felst skipuleg greining á þeim störfum sem unnin eru á vinnustaðnum og mat á hugsanlegri áhættu í starfi með tilliti til heilbrigðis og öryggis starfsmanna.

Er lögð rík áhersla á þátttöku almennra starfsmanna við skipulagningu og uppsetningu þessa starfs sem er komið til að vera.

Megin tilgangur þessa starfs er m.a. að fyrirbyggja og draga úr slysum, álagi, vanlíðan og heilsutjóni sem starfsmenn fyrirtækisins geta orðið fyrir við störf sín. Taka skal mið af bæði líkamlegum og andlegum þáttum.

  • Skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað skal að grunni til innihalda:

  • Sérstakt áhættumat.

  • Áætlun um heilsuvernd og forvarnir sem í samræmi við niðurstöður áhættumatsins leiði til úrbóta.

  • Eftirfylgni að úrbótum loknum.

Áhættuþáttum á vinnustað má skipta í fimm megin flokka. Tryggja þarf að þættir úr öllum flokkum séu teknir með í áhættumatinu. Þeir eru eftirfarandi:

  • Efni og notkun hættulegra efna s.s. hreinsiefna.

  • Félagslegir og andlegir vinnuverndarþættir s.s. samskipti, upplýsingaflæði, tímaþröng, einelti.

  • Álag á hreyfi- og stoðkerfi s.s. vegna einhæfrar vinnu.

  • Umhverfisþættir s.s. lýsing og birtuskilyrði, hávaði, hiti, kuldi dragsúgur, smitleiðir.

  • Vélar og tæki.

Sérfræðiþekking okkar á gæðastjórnun, matvæla- og efnafræði og fagþekking á framleiðsluferlum í matvælaiðju  nýtist mjög vel á þessu ráðagjafarsviði. 

Við höfum hlotið viðurkenningu Vinnueftirlitsins til starfa sem þjónustuaðili á sviði matvæla- og efnaiðnaðar á vinnustöðum. Sjá nánar hér.

Hafðu samband ef þú vilt fá nánari upplýsingar hvernig við getum aðstoðað þig við þetta starf.