Matvælatækni

 

 

   Home | Skilaboð | Velkomin | SGS skoðun | Hreinlætisklúbburinn | Hugbúnaður | Rannsóknarþjónustan | Mælitæki | Vinnuverndarráðgjöf | REACH ráðgjöf Velkomin
Sérfræðiráðgjöf og rannsóknarþjónusta fyrir iðnað og þjónustu.

Viðskiptavinir okkar koma að grunni til úr matvælaiðju s.s. fyrirtæki í eigu einkaaðila, stofnana og bæjarfélaga um land allt;  fiskvinnslur, útflytjendur, heildsalar, veitingastaðir, stóreldhús, kjötvinnslur, bakarí, matvöruverslanir auk rekstraraðila í ýmsum greinum atvinnulífsins þar sem sérfræðiþekking okkar nýtist á hreinlætis- og hollustuháttum.

Megin þjónusta:

- Ráðgjöf á sviði gæðastjórnunar í öllum greinum matvælaiðju, veitingastöðum og stóreldhúsum. Meginsvið er matvælaöryggi, hreinlætismál og hollustuháttum starfsmanna. 

- Ráðgjöf við uppsetningu, innleiðingu og viðhalds GÁMES/HACCP matvælaöryggiskerfa í matvælaiðju veitingastöðum og stóreldhúsum.  Við höfum nú þjónað vel á þriðja hundrað matvæladeilda á þessu sviði frá upphafi.

- Aðstoð við framkvæmd innra eftirlits s.s. aðstoð við innri úttektir á GÁMES/HACCP matvælaöryggiskerfum. 

- Starfsmannaþjálfun og gerð hagnýts fræðsluefnis tengt innra eftirlti í matvælaiðju. - Gerð fræðsluefnis um þrif, hollustuhætti, persónulegt hreinlæti og meðhöndlun matæla. Dæmi: Handþvottakerfi Matvælatækni.

- Sala og ráðgjöf á mælitækjum og stuðningsvörum fyrir innra eftirlit. 

- Hitastigsmælingar í framleiðslu/flutningsferli: Mælingar með sírita, úrvinnsla, túlkun og myndræn framsetning. 

- Sala á RODAC snertiskálum.

- Rekstur rannsóknarstofu - Sýnatökur og örverugreiningar matvæla og neysluvatns.

- Sýnatökur og efnagreiningar á matvælum og vatni (framkvæmdar á Rannsókarstofu Matís).

- Erum fulltrúar SGS (www.sgs.com) hér á landi og höfum haft einstaklega farsælt samstarf við þá frá 1989. 

- Sala og ráðgjöf á doHACCP hugbúnaði fyrir GÁMES/HACCP matvælaöryggiskerfi. 

- Ráðgjöf og sala tækja og búnaðar við gæðastýringu. 

- Umboð á íslandi fyrir vörur tengdar matvælaöryggis- og gæðamálum frá SanJamar, 

- Umboð á Íslandi fyrir Design - Expert® og Design - Ease® hugbúnað fyrir vöruþróun og rannsóknir frá Stat-Ease Inc. í BNA. 

Kynningarbæklingur hér.

Framkvæmdastjóri er Hákon Jóhannesson Matvælafræðingur B. Sc. (Hons.) .  Smella hér fyrir frekari upplýsingar.