|

SGS skoðun á Íslandi
Hákon Jóhannesson matvælafræðingur hefur verið umboðsmaður
fyrir SGS Danmark A/S hér síðan 1989 og unnið í nánu
samstarfi við þá.
Société Générale de Surveillance www.sgs.com
er stærsta skoðunarstofan á sínu sviði með starfssemi í
yfir 140 löndum. SGS getur því veitt þér skoðunarþjónustu
nánast hvar og hvenær sem er. SGS gegnir í dag veigamiklu
hlutverki í millilandaviðskiptum, sem faglegir, hlutlausir skoðunar-
og úttektaraðilar.
SGS hefur nú veitt skoðunarþjónustu hér
á Íslandi á þriðja áratug. Meginstarfið hefur verið í
tengslum við skoðun fiskafurða s.s. fiskimjöls og þurrkaðra
fiskafurða auk ýmissa iðnaðarvara og þá yfirleitt á vegum
kaupanda. Við höfum einnig annast ýmis sérverkefni
Fiskafurðir skipa stóran sett í útflutningi
frá Íslandi. Gæði vörunnar og heilnæmi skiptir miklu máli
í tengslum við það verð sem fæst fyrir hana og hefur
verulega að segja með að fá endurteknar pantanir og þá viðskiptavild
sem tryggir vöxt og viðgang viðskiptanna.
Við viljum nú útvíkka þá þjónustu
sem við innum af hendi hérlendis og nýta til hins ýtrasta
þá sérfræðiþekkingu sem við höfum á gæða- og
hollustumálum fiskvinnslunnar og aðstöðu sem við höfum
yfir að búa, til hagsbóta fyrir útflytjendur.
Viðskipti snúast oft um verð vöru og gæði.
Ýmsar spurningar vakna hjá kaupanda og seljanda í tengslum við
viðskiptin sem varða gæða- og hollustumál vörunnar: Hver
eru gæði hennar og stenst hún umræddar kröfur? Hvaða aðgerðir
eru í gangi við framleiðslu til þess að stýra gæðum og
til að tryggja hollustu afurðarinnar? Er varan alltaf eins eða
er hún breytileg frá einni sendingu til annarar? Hver leggur
mat á gæði vörunnar? Hvaða aðferðum er beitt við sýnatökur?
Hvernig er unnið úr mæligildum sýna/skoðana? Gefa lokaniðurstöður
skoðunar rétta og trúverðuga mynd af raunverulegu ástandi
afurðarinnar?
Á tímum nútíma gæðastjórnunar er
framleiðanda gert að byggja gæði og heilnæmi afurðar inn
í framleiðsluna með skipulögðum aðgerðum s.s. markvissu
innra eftirliti sem byggir á aðferðafræði HACCP gæðakerfisins,
en treysta ekki eingöngu á lokaskoðun.
Lokaskoðun er þó oft nauðsynleg í viðskiptum,
þegar vara skiptir um hendur - og sé hún framkvæmd verður hún
að vera unnin markvisst og af þekkingu. Vanda verður til sýnataka,
mælinga sýna, úrvinnslu mæligilda og túlkun þeirra, því
að megintilgangur lokaskoðunar er oft að leggja mat á stóra
sendingu með tiltölulega litlu sýnaúrtaki.
SGS sérhæfir sig í slíkum úttektum og
hvers kyns gæðamati og fara hér á eftir nokkrir þjónustuliðir
sem SGS skoðun annast hév á landi.
Skoðun á ástandi vörusendingar:
Lokaskoðun
Framkvæmd: Staðfesting á þyngd eininga,
heildarþyngd, fjölda eininga í sendingu og merkingum. Vinna
okkar s.s. varðandi sýnatöku, úrvinnslu mæligilda og túlkun
þeirra byggir alltaf á aðferðum sem hafa tölfræðilegan
grunn til þess að hægt sé að fá trúverðuga mynd af
raunverulegu ástandi sendingarinnar.
Markmið: Að meta hvort sending uppfyllir
umsamdar kröfur kaupsamnings s.s. magn og gæði (ýmsir
eiginleikar; hollustuþættir).
Niðurstöður: Skoðun getur leitt til þess
að vörusendingu sé hafnað, eða að hún fari í flokkun.
Loks má færa vöruna í annan verðflokk skv. samkomulagi við
kaupanda. Kaupandinn fær þó þá vöru sem hann greiðir
fyrir.
Skoðun á innra eftirliti vinnsluaðila
Í vissum tilfellum getur verið nauðsynlegt
fyrir útflutningsaðila að fá faglegt mat á aðstöðu og
framleiðsluháttum sinna birgja. Við getum tekið út
fiskvinnslustöðvar, hvort sem um einstakar skoðanir er að ræða
eða með reglulegu millibili. T.a.m.:
Virkni innra eftirlits: Úttektir á virkni
innra eftirlits framleiðanda með það fyrir augum að leggja
mat á virkni HACCP gæðakerfisins og hvort hreinlætisáætlunum
sé fylgt. Innra eftirlit og hreinlætisáætlanir sem settar
hafa verið upp, en eru ekki starfræktar gefa falskt öryggi
fyrir seljanda afurðar og kaupanda.
Hverskyns skoðanir og mælingar á
vettvangi
Oft geta fyrirvarlausar sýnatökur, mælingar
eða skoðanir gefið góða yfirsýn yfir aðstæður, gæði eða
hollustuhætti afurða.
Skoðanir vegna þess að kaupandi biður
um að SGS yfirfari tiltekna vörusendingu.
Hluti af vinnu SGS skoðunar er vegna beiðni
kaupanda eða yfirvalda viðkomandi lands um skoðun. Ýmis lönd
hafa gert samning við SGS um slíka skoðunarþjónustu s.s.
Angóla, Argentína (hluti), Kamerún, Eþíópía,
Filippseyjar
,
Haiti
, Perú, Rússland, Tansanía. Skoðun getur falið í sér m.a.
staðfestingu á vörugæðum og einingafjölda í gám, sýnatöku
og umsjón greininga og umbúðamerkingar.
Allri vinnu lýkur með skýrslu og ef á
þarf að halda, vottorði á erlendu tungumáli ef það þarf
að leggja niðurstöðurnar fyrir erlenda aðila.
Loks viljum við undirstika það að hér
hafa aðeins verið nefnd nokkur dæmi um það hvernig SGS skoðun
getur liðsinnt ykkur. Möguleikar SGS eru ótal margir bæði hérlendis
og erlendis.
Hér
má lesa viðskiptaskilmála SGS. (SGS General Conditions of Services).
Leitaðu upplýsinga
Hafðu samband ef þú óskar frekari
upplýsinga eða vilt fá tilboð vegna þjónustu.
|